Um Vísnavef

Vísur á þessum vef eru eftir afa minn, Magnús Þorgeirsson, stofnanda Pfaff hf.

Magnús samdi fullt af vísum yfir ævina, flestar hverjar voru á blaðasneplum sem fundust eftir hans dag.

Ég hef haft það verkefni í næstum 30 ár að koma þessu frá mér á einhverju formi þannig að aðrir geti notið, auk þess að koma þessu áfram til föður míns, Kristmanns Magnússonar, til yfirlesturs og leiðréttinga.
Sem áfanga í því hef ég skráð þetta í ýmsa gagnagrunna yfir tíðina, en aldrei gert almennilega aðgengilegt, sem ég hef loks lokið nú!

Birgir Kristmannsson, júlí 2026