Vísnavefur

Vísur — leitaðu eftir titli eða texta.

150 vísur

7. apríl 1955

1955 · #106

Ef drattast ég um, er dapur, sljór / dáði og fjöri rúinn, / drekki ég mér einn danskan bjór / - dapurleikinn flúinn.

9. apríl 1955

1955 · #107

Húnavatnssýslu-haninn / heimtar í einum fleng, / að konan hans litla, kæra / komi með lítinn dreng.

20. apríl 1955

1955 · #92

Ef heilsa þér sumar með sólskin og yl / silung í tjörnum, og laxinn í hyl.…

20. apríl 1955

1955 · #93

Mörg er gangan mæðulig / mikið er hvað ég lafi. / Laxinn ekki sýnir sig / en svamlar útí hafi. / Jón Kaldal sjötugur.…

24. apríl 1955

1955 · #91

Þegar þú leggur landi frá / læt ég af hendi bögu. / Gangi þér leið um loftin blá / líkt og í góðri sögu.

24. apríl 1955

1955 · #112

Meðan húkir ein í hettusótt / hafðu á öllu gætur, / láttu þér bara batna fljótt / og bröltu svo á fætur.

Reykjavík 3. maí 1955

1955 · #57

Í íþróttum enn þú vakir, / fyrir áhugann hafðu þökk. / Sé ósk mín að seint þú takir / þitt síðasta heljarstökk.

Til Mannsa 30. maí 1957

1957 · #146

Í tilveruna töltirðu inn / fyrir tuttugu árabaugum, / með bros á vör og bjarta kinn / og blik í dökkum augum.…

14. maí 1961

1961 · #80

Það, að við lifum á Þotuöld / þrúgar mitt næma eyra. / Lagaðu kútinn, komdu í kvöld. / Kannske þú lagir fleira.

22. janúar 1963

1963 · #150

Sigurður Jónsson bíður uppá bjór. / Þótt laugin hreinsi líkamann / lítt því skaltu flíka, / ef að þú þinn innri mann…

15. mars 1963

1963 · #121

Hér í Guðsi gestrisnar / og glöðum hópi manna. / Þakka ég votar veitingar / og viðmót gestgjafanna.

8. júlí 1963

1963 · #122

Ekki finnst mér voðinn vís, / né valdi miklu fári. / Þótt þrítugri ósk'ég þokkadís / þríbura á hverju ári.

1. janúar 1965

1965 · #123

Kominn af hafi karlinn er / kætist nú minn hagur. / Í bólið til hans bregð ég mér / þá búinn er nýársdagur.

3. október 1965

1965 · #105

Komdu gamli klækjarefur, / komdu og fáðu í belginn þinn / bjór, sem oft þér bragðast hefur…