Til M.Þ.23. janúar 1962
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026), Kristmann Magnússon (02/08/2026)
1
Hvar sem leikur bros um brá
2
og bjartir álfar sveima
3
Hvar sem kímni óðul á
4
áttu líka heima.
5
Hljóttu jafnan hreysti og fjör
6
- hafðu þökk og gaman
7
fyrir greind og glaðvær svör
8
og glettnina alla saman.
Athugasemdir (1)