#1024
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (02/08/2026)
1
Í meyjarskemma mæta
2
mér var boðið inn.
3
Pegasus minn átti að prýða
4
Poesibókar-skinn.
5
Er klárinn var prati og prettinn,
6
prjónaði, frat og jós,
7
og hvernig sem reyndi ég að ríma
8
mín ræða varð ekki ljós.
9
Og hvað sem ég klárinn lamdi
10
ég kom honum ekki af stað.
11
Því verður litla ljóðið
12
líklega óskrifað blað.
13
Inga með vor á vanga
14
í vændum á sumar blítt
15
biðla í þröngum buxum
16
Beatla - með hárið sítt.
17
Mundu mig, því ég man þig
18
meyjarnar flestar skrifa.
19
Hrópa af kæti hver um sig
20
"Himneskt er að lifa!"