Kútmagakvæði, Lion 20. febrúar 1964

#103
1 Þótt ekkert sé hér um eðla skvísur
2 og ennþá minna um sálma.
3 Vænti ég þess að velli vísur
4 af vörum Jóns míns Pálma.
 
5 Að Hjörtur skyldi fara í ferð
6 fór mig til að grunda,
7 að brjóstahalda og bögugerð
8 býsna margir stunda.
 
9 Síðustu dreggjar drekk ég út,
10 drykkju sjaldan þreyti,
11 en aldrei mun ég kveða í kút
12 kappann Hjört í Lady
 
13 Hjörtur.
14 Framleiðslan er valin vönd,
15 víst ég sauma og falda.
16 Magnúsi þakka ef brjóstabönd
17 og buxnasaumar halda.

Eftirmáli

Hver orti ?

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.