21. mars 1972

#1039

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (30/07/2026)

1 Þér æfikveldið á Krummakletti
2 kyrrlátt verði og þig ei pretti
3 „um jöklafegurð, fjallasýn
4 og fegurð himins - það er óskin mín.
 
5 Þessi bók á þér veg að vísa
6 veginn þrönga um landið ísa,
7 svo berist þú eigi á breiða veginn
8 í basli lífsins hérna megin.
 
9 Og klakklaust þú fyrir Kópavoginn
10 komist, hvar snarkar vítisloginn
11 og svartir púkar með sinni illt
12 geta sálarfriði og gleði spillt.

Athugasemdir (1)