#1045

#1045

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Sigurðar, sómafressið
2 sendist oft milli hæða.
3 En seggi það síst hefði grunað
4 að seinna hann reyndist læða.
 
5 Hefðarfrúr héldu í veislu
6 hressingu margskonar þiggja
7 en sannaðist hér, sem oft áður,
8 að satt oftast kyrrt má liggja.
 
9 Umtalsefni var ekkert
10 allar righjeldu kjafti.
11 Undi Thea því illa
12 opnaði túlann af krafti.
 
13 Sagði frá Sigurði - læðu
14 hve sérlega af fressum oft bar hún
15 í ógæti gætti þessi ekki
16 að alnafni húsbóndans var hún
 
17 Dúnalogn datt yfir hópinn
18 dökknaði ekkjunnar svipur
19 þraut hana hvern þá kraftinn
20 þagnaði talandinn lipur.
 
21 Sigurður karlinn á sjónum
22 sómakarl var og lipur.
23 En, læðu-fressið líka
24 ljómandi reyndist gripur.