#1068

#1068

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Þakka ég tóbaks- þeginn stauk
2 þína rausn og gæði.
3 Gott er að eiga í horni Hauk
4 hann við ræða í næði.
 
5 Mér það léttir lífsins gang
6 losna margt við þrefið.
7 Lipur verður vélaprang
8 vel ef tek í nefið.
 
9 Skýrist hugsun, skerpist sjón
10 skynjar hugur fleira.
11 Kveður allt við annan tón
12 engir fjötrar reyra.
 
13 Enn á ég til þín eina bón
14 minn elskulegi tóbaks jón
15 Sárt að forðast sálartjón
16 segi ég loka orðið:
17 Týndu nú fleiri tegundir á borðið!