#1099
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Vil ég það lengi vona
2
þótt vegirnir skiljist nú,
3
að síðar við sjáumst aftur
4
í sólskini - ég og þú.
5
Verður þá margs að minnast,
6
margs, sem á daga dreif,
7
þrasi og þurrum fræðum
8
og þess, sem að hugann hreif.
9
Verði þér vegurinn greiður
10
vald'uppá hæst tind.
11
Ég spái að sjái ég síðar
12
í "Speglinum" af þér mynd.
13
Hvað sem á daga dynur
14
duga við skulum víst,
15
og sýna að í kögglum sé kraftur
16
hvað sem á móti snýst