#1103
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Pundar blítt á báðar hendur,
2
býsna keikur Magnús stendur.
3
verst er það hann vaknar kendur,
4
vín þó eigi drekki.
5
Öldungur, sá yngsti sem eg þekki.
6
Halldór lyftir giasi glaður,
7
gamalreyndur drykkju-maður
8
efst á toppnum er hans staður,
9
Allt Í lagi strákar.
10
Bernardelli bráðlega hann skákar.
11
Líkams-þrekinn líkur kletti
12
ljúfur, þó hann í sig skvetti.
13
Eitt er það sem er og verður
14
alltaf Ragnars traust og hald,
15
Hænurnar á Wienarwald. |
16
Jósafat af reynslu ríkur,
17
raunar enginn finnst hér slíkur.
18
Hampar Kyndli Keflavíkur
19
kúnna aldrei blekkir.
20
Ítölsk stjórnmál enginn betur þekkir.
21
Miðjum undir morgunverði
22
mér var sagt það eftir Herði,
23
að gull hann kaupi góðu verði
24
og gömlum úrum safni.
25
Í öskutunnum allt það trúi eg hafni.
26
Gengur mildur götur breiðar,
27
greitt þá hverfa sorgir leiðar.
28
Vino rosso vino bianco
29
velgja Knúti, till the end.
30
He'll kill you sir for nothing
31
because you are his friend.
32
Ýmsar gefa aðrar taka,
33
ekkert Helgi fékk til baka.
34
Í nótt er gott að vaka vaka
35
og vinna sagði snótin.
36
Presto presto passaðu á þér fótinn.
37
Sorglegt er að sjá hann Pálma
38
sífullann um götur skálma.
39
Á nóttum hátt hann heyrist mjálma,
40
heldur að það sé söngur.
41
Furðulegt hvað frakkinn hans er þröngur. |
Athugasemdir (2)