8. júní 1972
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (02/08/2026)
1
Starfið er margt, en stirt er bræðrabandið
2
stórlega eykst nú túristanna randið
3
stykkjað er niður Stóru-Grafar landið
4
steypist í ána svikamannahlandið.
5
Krummakletts-bóndinn krunkar á sína nafna
6
kann ekki ykkur góða boði að hafna
7
Krónum úr gulli kann ég vel að safna
8
komið með sjóði ykkar niðurgrafna.
9
Leó, sem veittir landið mér þitt forna
10
lautir og flóa, læki niðurskorna
11
gæði þess ljæ nú görpum til þess borna
12
gullkista þeirra megi aldrei þorna.
Athugasemdir (1)