Nú er bjart yfir Borgarfirði og brúði á Skorradal

#1129

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (03/08/2026)

1 Það dimmir og dagar styttast
2 daprast hugur og sál.
3 Kveður oss mærin mæta
4 minninga tendrast bál.
 
5 Við mættum þar blíðum brosum
6 blómlegum yndisleik.
7 Óspart hún undir fótinn
8 okkur gaf - hvergi smeyk.
 
9 En ástin hún lá í leyni
10 lævís oft marga stund.
11 Hún dró hana yfir Dragann
12 til Davíðs, sem býr á Grund.
 
13 Og Davíð er karl í krapi
14 og kann sín hreppstjóratök.
15 Við orðum það ekki meira
16 ei var það hennar sök.
 
17 Frá blýöntum, bókum og pennum
18 í búskapinn skundar nú,
19 þótt mærin sú mæta ei vissi
20 muninn á hesti og kú.
 
21 Efumst þó ekki lengur
22 að hún sig klári pent.
23 Ótrauðir yngismeyjunni
24 ýmislegt höfum kennt.
 
25 Um fénað og fengitíma
26 folöld og kálfastóð,
27 tryppi og trússahesta,
28 var tæplega kennslan góð.
 
29 Enda er öldin önnur
30 allt orðið tækni góð.
31 Traktor í stað fyrir truntu
32 og tuddinn kominn úr móð.
 
33 Mjaltir og meðferð kúa
34 að mestu nafnið er.
35 allt bogur við beljurassa
36 búið - sem betur fer.
 
37 Heyið komið í hlöðu
38 í hálfrar viku þurrk,
39 nýmóðins tæki og tækni,
40 töðunni gera skurrk.
 
41 Svo um helgar er brunað á bílnum,
42 á böllin og mannamót,
43 en forleikar fyrri tíma,
44 fá ekki að bera snót.
 
45 Já - svona er sveitalífið
46 svífandi rósadans,
47 eitthvað annað en argið
48 aumingja borgarans.
 
49 Að endingu læt í ljósi
50 lifandi trú á því,
51 að borgardæturnar björtu,
52 búi í sveit á ný.
 
53 Mínar frómustu óskir fylgja
54 fegurstri sprund og hal,
55 nú er bjart yfir Borgarfirði
56 og brúði í Skorradal.

Athugasemdir (1)