Stjórnarvísur
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Verður "bjargráð" vinstri stjórn?
2
Varla trú'eg þessu.
3
Hún lætur aðra færa fórn
4
en fer með allt í klessu.
5
Í stólinn Hermann heldur ser.
6
hann vill allt til vinna.
7
Af Keflavík ei Kaninn fer,
8
hvað skal nú til finna ?
9
Hásalaga Hannibal,
10
háskagripur mesti,
11
alþýðunnar uppúr mal
12
etur stolið nesti.
13
Enn þeir plokka af mér fé
14
aldrei fyllist hítin.
15
Er það satt hann Eysteinn sé
16
með allt að far'í skítinn ?
17
Gvendur Í, er garpur hár
18
greiðu svörin veitir,
19
madurinn hefir magasár,
20
minna um það skeytir.
21
Gengið krónu Gylfi vill —
22
gjarnan láta síga.
23
Á honum hvíla örlög ill,
24
oft er nefndur kvíga.
25
Lúðvík stjórnarljóminn er,
26
lætur sig ei plata,
27
en lof hann áfram Lenins-her
28
liggur hann eins og skata.
Athugasemdir (1)