Forsetakosningar1968
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Hvað er á seyði? Hvert skal halda?
2
Kosningar, sem miklu valda.
3
Er ei vísast við að staldra,
4
vita hvað í boði er?
5
- Illt er að vita ef illa fer.
6
Forsetinn er fremstur manna,
7
fridertákn á milli granna.
8
Í stjórnarkrepnum styrkleik sanna,
9
stýra á milli báru og skers.
10
- Láta ei skútu lenda þvers.
11
Á verkinu er betra vit að hafa,
12
vera aldrei í neinum vafa.
13
Ekki bara gripi að grafa
14
gamla úr jörðu - eða þvíumlíkt.
15
- Fimlega bótt fari slíkt.
16
Betra er að þekkja þræði
17
brefs í málum - leggja á klæði.
18
Málið ekki meira ræði
19
en mannkostina met og veg.
20
- Það gera meiri menn en eg.
21
Þá vorið kemur vængjum þöndum,
22
velferðinni ekki gröndum,
23
vart er okkur vandi á höndum
24
að velja rétt - það gerum vér.
25
- Sómi hvers það sýnist mér.
26
Gunnari treystum gott að gera
27
giftu færa lendi frera,
28
hjálparhellu í vanda vera,
29
virðulegur sóma-grér.
30
- Fast honum allir fylgjum vér.