Við brúðkaup Kristínar Bernhöft og Péturs Orra Þórðarsonar 10. september 1966
1
Ég verð alltaf illa stemmdur,
2
undarlega um hjartað klemmdur,
3
ef á flugi fugl er hremmdur
4
eða falleg stúlka giftir sig.
5
Tilveran er tætingslig.
6
Helst ég vildi eiga þær allar,
7
einkum þegar sumri hallar,
8
þegar blíðu blómin vallar
9
blikna og fölna - - haustar að.
10
Tilverunnar tæpast vað.
11
Enn á ný er ein mér glötuð,
12
af ungum manni í standið plötuð,
13
hratt og greitt í haftið fjötruð.
14
Hún virðist samt una því.
15
Tilverunnar dirrindí.
16
Nú skal yrkja í öðrum tón,
17
á aðra strengi hlíða.
18
Þessi ungu og þekku hjón
19
þurfa engu að kvíða.
20
Framtíðin er björt og blíð,
21
brosir þeim í móti,
22
lofar ástum alla tíð
23
svo ávallt lífsins njóti.
24
Kristín engu kvíða þarf
25
þótt komi harður vetur.
26
Það verður indælt aukastarf
27
að elska heitt sinn Pétur.
28
Pétri þetta pára á blað
29
prýðisdrengur góður,
30
þér mun ekkert ama að
31
með ánægða tengdamóður.
32
Óskir vorar ekki dyl,
33
ekkert valdi grandi,
34
gefi ykkur lífið ljós og yl
35
og lukku í hjónabandi.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.