#1188

#1188

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Ástin þér í augum skín
2 elskulega Gunna mín,
3 eins og í glasi glitri vín
4 ein glói dögg á engi,
5 þig vil ég elska lengi, lengi, lengi.
 
6 Ó, hvað ég vildi una við
7 einn með þér, í næturfrið,
8 súta ekkert siðferðið
9 en sjálfsagt láta flakka,
10 með þér eiga marga, marga, krakka.
 
11 Oft mín ljóð ég yrki um þig
12 ein þú hefur töfrað mig.
13 Þótt velkist ég um villustig
14 veginn samt mun finna
15 og vona þá þú viljir mér aftur sinna.
 
16 Þér ég syng minn ástaróð
17 yndislega og bjarta fljóð.
18 Ég allur brenn af innri glóð
19 sem aldrei fær að dofna
20 Í þínum örmum alsæll myndi sofna.
 
21 Lýk ég við minn ljóðafoss
22 með leyndri von um dýrsta hnoss:
23 hljóti að launum heitan koss
24 af hlýjum vörum þínum
25 Færðu eflaust fyrir hann fleiri af ljóðum mínum.