#1193

#1193

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

Á gamla alþýðuvísu:

1 Þegar sól úr heiði hæzt
2 háfjöll geislum baðar
3 til sín Laxárgljúfrið glæst
4 gamlan hjarðmann laðar,
 
5 Þar í fyrra forsjón gaf
6 - fyrir ykkar gæði -
7 barmafullan bikar af
8 birtu frið' og næði.
 
9 Óbein loforð ljóss um vor
10 löngun okkur vekja
11 í að mega aftur spor
12 ykkar fyrstu rekja.
 

Á nútíma máli:

13 Hæ, gæjs.
 
14 Viljiðði reddokkurum fjallpleisið i Laxá
15 tvo fyrstu dagana ettrað þihavið pruvað sjálvir.
 
16 Bæ, bæ.