#1218

#1218

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Fríverslun er frelsi háð,
2 framtak má ei hefta.
3 Engu tapað, ýmsu náð
4 við inngöngu í Efta.
 
5 Frestun því mér finnst ei ráð
6 færið notum góða.
7 Fastar tengjum friðar þráð
8 frænda- og vinaþjóða.