Tvíburasystirin

#1222

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Þótt þú ekki sért ávalt í "stuði!
2 áhyggur hafa ei skallt,
3 því fyrir minn frábæra skilning
4 þér fyrirgefst, vinur minn, allt.
 
5 Vort líf er ein blekkingabuna
6 frá byrjun til endadags.
7 Við skiljum samt ávallt hvort annað
8 í einingu bræðralags.
 
9 Í einu og sama eggi
10 undrin oft gerast fín.
11 Í tuttuga ár hefur tafist
12 hún tvíburasystir mín.
 
13 En áhyggjur engar hún hefir
14 ærslast með glaða brún,
15 að hálfnuðum áttræðis aldri
16 ætlar að skauta hún.