#1226

#1226

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Allt frá því í Edensgarði Eva forðum
2 eplið át - fór allt úr skorðum.
3 Eyði ekki að því fleiri orðum.
 
4 Ávöxtur þess eplakjarna ætíð síðan
5 ótta vekur - eykur kvíðann.
6 Undirtón þótt hafi blíðan.
 
7 Fullt er tunglið, funar blóðið fellur meyja
8 forðast ekki frekan peyja.
9 Fátt er gott um það að segja.