#1234

#1234

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Í ferðalag er fór hún út
2 í fyrstu nokkuð dreymin,
3 flökrar ei við flöskustút
4 og fannst hún eiga heiminn.
 
5 Af Sigurði ei datt né draup
6 dálítið hissa stundum,
7 frjálslega samt á flösku saup
8 með fríðum þýskum sprundum.