#1237
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
Edda
1
Þegar út á stoppistöð
2
úr strætisvagni skyldunnar
3
stígur, mæta mundi það
4
mest að njóta gleðinnar.
Mannsi
5
Sæktu út á sólarmið
6
sorgar - laus við tárin.
7
Gleðileg jól og gæfu og frið
8
gefi þér næstu árin.
Leifur
9
Á Elfu - lífs er öldurót
10
oft, og kvikul bára.
11
Gakktu, vinur, gleði mót
12
og gengi næstu ára.
Imba
13
Það er vandi að róa rétt
14
renna framhjá bakka.
15
Reyndi að taka lífi létt
16
og láta bara flakka.