Silfurbrúðkaup Nonna og Gunnu 20. júlí 1965

#124
1 Nú skal léttan ljóðagand
2 láta taka sporið.
3 Heilagt prýsa hjónaband
4 hugsa um blíða vorið.
 
5 Allt er grænt og yndisbjart
6 engar dimmar nætur.
7 Náttúran með sitt nýja skart
8 njóta alla lætur.
 
9 Sumar líður lækkar sól
10 lengjast dimmar nætur,
11 dimmir um hvern dal og hól
12 drýpur regn og grætur.
 
13 En þótt húmi og hausti að
14 hrynji lauf af viði,
15 kyrrð og ró þá kemur í stað,
16 kveður lóa í friði.
 
17 Ekkert getur aukið grand,
18 engar falla skriður.
19 Aldarfjórðungs ektastand
20 er sem haustsins friður.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.