Kveðja til Gunnu Kaldal á afmælisdaginn 1968

#1242

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Íslands fríða fjallasól,
2 fegurst prýðin svanna,
3 veiti þér lífið vörn og skjól
4 í veðrum hríða og fanna.
 
5 Fegurð þín mér færir yl,
6 frið og yndið góða,
7 þér vil ég um árabil
8 ausa úr brunni ljóða.

Athugasemdir (1)