Guðrún Kaldal 14. ágúst 1968

#125
1 Fullur er nú fimmti tugur,
2 til ferðalaga leitar hugur.
3 Enn er í þér dáð og dugur
4 og dálítið af energi.
5 Er nokkur hér sem neitar því?
 
6 Ákveðið var samt að þú skyldir
7 uppí stekk, hvort sem þú vildir
8 eður ei- en einu gildir,
9 enn koma dagar og önnur ráð.
10 Sagan verður seinna skráð.
 
11 Fyrst þú vilt heldur finna Dani
12 og fara þangað í einu spani,
13 reigi ég mig sem reiður hani
14 og reyni að gala til þín stef.
15 Önnur ráð ég ekki hef.
 
16 Labbaðu um Ströjeg létt á fæti,
17 labbaðu um götur, torg og stræti,
18 bregður undir þig betra fæti
19 með bátnum yfir Eyrarsund.
20 Sækir um stund á Svíafund.
 
21 Fylgi þér gleði, gæfa og gengi,
22 gangi allt vel - þú lifir lengi.
23 Hörpu minnar stilli ég strengi
24 og stuðla eins og bezt ég get.
25 Kvenna allra mest þig met.
 
26 Megi þig ávalt mærin blíða,
27 mildi Drottins stöðugt prýða,
28 þurfir aldrei þrautum kvíða,
29 né þrengingum í lífi hér.
30 Blessunar allrar biðjum þér.
 
31 Læt ég fylgja lítinn sjóð,
32 láttu hann renna - heillin góð -
33 í hátíðarmat á Hafnarslóð
34 á hálfra-aldar-degi.
35 Óskir góðar ykkur fylgja megi.
 
36 Snuðaður verð um kaffi og kökur
37 þótt kreisti ég úr mér nokkrar stökur.
38 Eftir langa vakt og vökur
39 velt ég útaf sofandi.
40 Lífið í draumi lofandi.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.