#1251

#1251

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Otti beitir orfinu
2 án þess neinn að slasa
3 heldur hann í horfinu
4 hröðum vexti grasa.
 
5 Imba málar aftur nú
6 alla Stekkjar-glugga,
7 hagleik sýnir hefðarfrú
8 hvergi bere á skugga.
 
9 Magnús röltir meðan á
10 mæðulega vaxinn,
11 hendir beitu hylji á,
12 hvergi finnur laxinn.

Athugasemdir (1)