Til M.Þ.23. janúar 1967

#1304

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (05/08/2026)

1 Þína skál og þetta full á þér að færa
2 hálfsjötugum heiðursmanni
3 hlýja kveðju úr mínum ranni.
 
4 Veiti ætíð gjöful gleðin góðar stundir
5 ylji þér á æfivegi
6 alveg fram að hinzta degi.
 
7 Þegar húmar hinzta sinn þú hittir Pétur
8 láttu hann heyra létta bögu
9 ljúgðu í hann góðri sögu.
 
10 Láttu hann heyra um laxamergð að leik í hyljum
11 Pétur hlustar harla glaður
12 - hann er gamall fiskimaður.
 
13 Hann mun segja: "Heyrðu Maggi" hlýjum rómi
14 "þekkti ég fáa þína líka
15 en þyrfti að hitta marga slíka."

Eftirmáli

Kær kveðja og árnaðaróskir - Sigurður