#143

#143
1 Þetta myrkur mæðir mig
2 minn er kroppur þungur,
3 andleysi og undarlig
4 amasemi sýnir sig.
5 Illt er að vera ekki lengur ungur.
 
6 Úr því bættu Axel minn,
7 eins og þinn er háttur.
8 Krassandi gefðu karli inn
9 svo krankur lifni búkurinn.
10 Meðala þinna er mikill læknismáttur.
 
11 Svo úr mér rjúki allt mitt kvef,
12 aldrei þurfi að hnerra,
13 vinur, þér á vald mig gef
14 vonina ég misst ei hef.
15 Út skal drífa illt með öðru verra.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.