22. janúar 1963

#150
1 Sigurður Jónsson bíður uppá bjór.
2 Þótt laugin hreinsi líkamann
3 lítt því skaltu flíka,
4 ef að þú þinn innri mann
5 ekki hreinsar líka.
 
6 M.Þ. svarar.
7 Þó að burt þú skolir skít,
8 af skrokk á hverjum degi.
9 Verður sálin varla hvít
10 af vafasömum legi.
 
11 S.J. svarar.
12 Dvínar ei þitt drykkjuþol,
13 drýpur kerskni-skálin.
14 En vart er til svö skítugt skol
15 að skáni ekki sálin.
 
16 M.Þ. svarar daginn eftir.
17 Þótt þú feitan baðir bol
18 breytast lítið málin,
19 og þó þú kaupir klór og þvol,
20 hvítnar ekki sálin.
 
21 Ef hjá mér þiggur þurt og vott
22 þriflegt andans fóður.
23 Sé ég um þinn sálarþvott
24 Sigurður minn góður.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.