Bréf frá M.Þ. til Guðm. sent til Barselona 25. apríl 1967

#16
1 Þakka ég lítið ljóðabréf
2 ljúflega þess ég notið hef
3 tóbakið enn ég tek í nef
4 og treð í vör á Lalla
5 Í París og Höfn er piltur búinn að ralla.
 
6 Til þín nær Tikk-Takk söngur minn
7 súkkulaði-drengurinn
8 Tóngæðin helga tilganginn
9 þótt trufli þitt næma eyra
10 mættir fá miklu meira að heyra
 
11 Blíð og falleg er baðströndin
12 Betri finnst mér þó garðurinn
13 þótt svöl og köld sé sundlaugin
14 svamla ég þar á milli
15 svei mér ef þetta er ort af snilli.
 
16 Þín hef ég haldið heilræðin
17 og heldur aukið skammtinn minn
18 og bágt á ég með hann bróðir þinn
19 en betur gengur með trúna
20 Ég yrki ei öllu meira til þín núna.

Eftirmáli

ATH blað sem þessi vísa er á. Eitthvað grunsamlegt

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.