Lýsing á Bókamarkaðs-bísum 19. febrúar 1970

#26
1 Annar er langur, ljótur, svartur,
2 líka er hinn verri partur.
3 Einn er þybbinn, á hárið bjartur,
4 af húnvetningum kominn er.
5 Það honum til tekna telja ber.
 
6 Sá stutti er oft með opinn kjaftinn
7 - ekki vantar í hann kraftinn -
8 þó má reiða sig á kraftinn,
9 rummungur í buisiness er.
10 Á flótta er best að forða sér.
 
11 Hinn langi í stolnum, stuttum frakka
12 stikar um, er oft að flakka,
13 forsjóninni má fyrir þakka
14 ef frakka sínum heldur hver.
15 Lofa ég þann, sem líknar mér.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.