21. febrúar 1973
1
Ýmsar plágur og óáran.
2
Yfir ganga nú okkur
3
ýmsar plágur og grand,
4
eldgos hjá eyjaskeggjum
5
enskurinn upp við sand.
6
Verkföll og verðfall krónu
7
og vísitölusvik,
8
kratarnir kaldir ólmast,
9
kommarnir sína hik.
10
Valt er veraldargengi
11
varl'er á góðu von.
12
Er að furða þótt æpi
13
Ólafur Jóhannesson?
14
Eru þó öðrum verri
15
árlegu plágurnar,
16
bókamarkaðar bröltið
17
Blöndals og Jónasar.
18
Þar greiðast gamlar bækur,
19
gyltar á kjöl og snið,
20
með gömlum krónum í gildi
21
gullsins, að fornum sið.
22
Mikið er talað um menning,
23
mærðin er ekkert basl,
24
stomljóð, æfisögur
25
og ástarrómanadrasl.
26
Þeir félagar er'ekki feimnir
27
en frekt reka sölustríð
28
og plokka hvern einasta eyri
29
af auðtrúa kaupalið.
30
Bókamarkaðar - bossann,
31
Blöndal ég fremstan tel.
32
Fjárins gætir, sem fyrrum
33
og fylgist með öllu vel.
34
Langtum verri er sá langi
35
laus við allt samviskubit,
36
end'eins og allir vita
37
andskoti svartur á lit.
38
Stór er og fjandi stæltur
39
stúlkum þykir hann flott.
40
Þó glottir sá gamli refur
41
og girðir í buxur skott.
42
En alltaf er sama sagan
43
sögð hverjum halog sprund:
44
ágóðavon er engin,
45
ánægjan þeirra pund.
46
Að lokum á ég eina bón
47
að þeir býði lítið tjón
48
en þokkalega þéni.
49
Svo kemur ennþá árið eitt
50
aftur reyna að mata feitt
51
Bísar í bókagreni.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.