Jólafrí des 1972

#3
1 Ég bíð þig velkomna vinan bjarta,
2 sem vermir stöðugt mitt aldna hjarta.
3 Dimman hverfur en dagsljós skín
4 ef dvelur þú hjá mér ástin mín.
 
5 Láttu því Davíð lönd og leið
6 en leyf mér þig elska um nokkurt skeið.
7 Þá skal drukkið, duflað, kysst,
8 úr druslum farið innst sem yst.
 
9 Þótt aldinn ég sé, er enn mitt blóð
10 ólgandi af þrá, mín vinan góð.
11 Mín ást er glóandi, ofsaheit,
12 allt öðruvísi en uppí sveit.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.