Herra Guðmundur Sveinsson Félagsheimili Rafmagnsveitu Reykjavíkur við Elliðaár 6. janúar 1977

#47
1 Þú þrammaðir inn í þennan heim
2 á þrettándanum fyrir 70 árum.
3 Fljótur til í fjörugt "game"
4 ferðaglaður og einn aðf þeim,
5 sem alltaf héldu kolli sínum klárum.
 
6 Renndu þér enn um ruddan veg,
7 þótt rétt sé af þér mesta fartin.
8 Oft er í vötnum veiði treg,
9 varla ég þó í efa dreg,
10 ef vel er laft, þú veiðir mesta partinn.
 
11 Við lýsingu þessa ei lengur tef,
12 losa þig við svartagaldur,
13 lík svo við mitt ljóðastef,
14 lukkunni þig á vald ég gef,
15 lifðu heill um langan, langan aldur.

Eftirmáli

Með bestu afmælisóskum

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.