Árnaðaróskir

#68
1 Hvað nú sem að hnokkinn heitir
2 hamingjan fylgi honum ár og síð.
3 Gefi honum sá er gott allt veitir
4 gæfu, hreysti og gleðitíð.
 
5 Þegar leið er lundin mín,
6 ljúfa hringatróða,
7 leitar hugur heim til þín,
8 heilladísin góða.
 
9 Faðmlag aldrei fæ né koss,
10 fátt er nú til gleði.
11 Dapurlega dreg minn kross
12 drungi þrúgar geði.
 
13 Ef þig aðeins af of til
14 augum fengi að líta.
15 Það væri eins og skúraskil
16 sköpum myndi hlíta.
 
17 Eins ef þig til borgar ber
18 bíllinn Rovers snjalli,
19 ættirðu að líta inn hjá mér
20 ásamt þínum kalli*
 
21 Gleðileg jól og gott nýtt ár
22 gefi ykkur sjóli hæða.
23 Megi himinn heiður, klár,
24 hjónasælu glæða.

Eftirmáli

Með bestu jóla- og nýárs kveðjum frá mér og minni kellu. * P.S. Þetta með kallinn er ekkert aðalatriði.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.