19. október 1970

#85
1 Þetta verður lélegt ljóð, en læt samt flakka.
2 Fyrst af öllu þér vil þakka
3 þakka dvöl á Laxabakka.
 
4 Læt ég fylgja fróma ósk um framtíð alla.
5 Megir þú í faðmi fjalla
6 friðar njóta er þau kalla.
 
7 Óðum styttist æfiskeið og árin streyma
8 þína minning myndi[??] geyma
9 af mörgu því, sem aðrir gleyma.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.