20. apríl 1955

#93
1 Mörg er gangan mæðulig
2 mikið er hvað ég lafi.
3 Laxinn ekki sýnir sig
4 en svamlar útí hafi.
 
5 Jón Kaldal sjötugur.
6 Í nágrenni við Norðurpól
7 næðir oft á manni,
8 er þó gott að eiga skjól
9 í eigin hlýjum ranni.
 
10 Líða dagar lengist nótt
11 liðið þetta sumar
12 kaldur vetur kemur skjótt
13 Kári úti þrumar.
 
14 Áfram líður lífsins lind
15 laus frá tíma fornum,
16 Mig langar að bregð' upp bjartri mynd
17 af bragning aðalbornum.
 
18 Húnavatnssýsla elur enn
19 ýmsa góða og vonda menn
20 afbragðsmenn, sem af öðrum bera
21 og aðra, sem ættu hvergi að vera.
 
22 Einn vil ég nefna öðlingshal
23 uppvaxinn í Stóra-dal.
24 Sjötugur er nú seggurinn
25 silfurhærður kollurinn.
 
26 Sá var nú ekki seinn á legg.
27 Sífellt hlaupandi um fjallsins egg.
28 Í Danmörku síðar dönum hlóð
29 dágóð met gaf vorri þjóð.
 
30 Menntaðist þar í myndasmíð
31 meistaralega - og ár og síð
32 sífellt myndar "svart og hvítt"
33 seggi með andlit skeggi prítt.
 
34 Svo maður nefni ekki svannafjöld
35 með sexappeal á myndaspjöld.
36 Mörg honum unni meyjan fríð -
37 - margt hefir skeð á fyrri tíð.
 
38 Síðar hann valdi eina úr
39 afsal gaf á sitt kvennabúr.
40 Guðrún hún bar sem gull af eir
41 grannvaxin, fríð og mikið meir.
 
42 Í aldarfjórðungsektastand
43 auðgað hafa þetta land
44 um son og dætur tvær svásar tvær
45 svannablómi eru þær.
 
46 Um soninn eflaust segja má
47 sá er nú ekkert ýlustrá,
48 útlærður sem arkitekt,
49 alltaf sína skyldu þekkt.
 
50 Hvað vilja menn nú meira fá
51 um manninn heyra, en skírt er frá?
52 Það myndi líða langt á kvöld
53 að lesa öll hans myndaspjöld.
 
54 Nú er komið nóg af leir
55 nú er best að spara.
56 Kæru vinir, ég kveð ei meir,
57 en kveð - ég er að fara.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.