Sent ????? Sjá blað 2. október 1971
1
Þínar kveðjur, kæri vinur,
2
kann ég ósköp vel að meta.
3
Lítillar ættar, lítill hlynur,
4
léleg er þín andleg geta.
5
Um afmælisgreinar ekkert hugsa,
6
afgreitt mál, og þar með búið.
7
En þvílíka að þekkja uxa
8
það finnst mér nú fjandi snúið.
9
Ef þú værir út við Rín
10
og í þig stöðugt belgdir vín,
11
fljótlega yrðir eins og svín
12
ósköp líkur Hagalín.
13
Það er líf á lygnri Rín
14
lygn og dreymin streymir.
15
Laus við kíf, hin léttu vín
16
ég lep og gleyminn dreymi.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.