Stangveiðiballið 1958 1958

#100
1 Í vígahug á veiðiballið við nú höldum,
2 dönsum þar og drekkum mikið,
3 með dyggðinni samt pössum strikir.
 
4 Einfaldan er ákveðið skal aðeins drekka,
5 fróm eru þvílík fyrirheiti,
6 en fordæming á næsta leyti.
 
7 Hjá Gunnu trú' ég Gestur tveim í glasið helli,
8 blandar gosi í bráðum hvelli,
9 blíð er frúin, sterk á svelli.
 
10 Með glöðu brosi Gunna segir: Góðu vinir,
11 ég samviskuna set í hlekki
12 svo hún vit' ei hvað ég drekki.
 
13 Hænsnasúpu, heilan lax og hangið kjötið,
14 borða menn og bragð' á víni,
15 við borðhaldið er fullt af gríni.
 
16 Dátt er hlegið, duflað heitt og drjúgt er rokkað,
17 úr eyrum fljúga eyrnalokkar
18 eftir gólfi léttir skokka.
 
19 Við armlög heit og ástarglóð svo uppúr logar,
20 Vasaklútar á vængjum svífa,
21 víst er í heimi gott að lifa.
 
22 Heim á leið á hálu svelli og háum hælum,
23 þarf jafnvæginu jákvætt stjórna,
24 hinu jetna kannske á götu fórna.
 
25 Nei, vinir góðir, vín að drekka varist allir.
26 Hófs skal gæta í hófum öllum
27 helst það forðar skakkaföllum.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.