Jólin 1960
1
Vísu þína vil ég hér með verðugt þakka.
2
Viltu ekki vinur kæri
3
vera með og bleyta færi?
4
Við skulum koma að vori saman í veiðislarkið.
5
Vaða út í veiðipytti
6
og veiða nokkra silingstitti.
7
Hver veit nema hnúðlaxinn þá hafi gengið?
8
Þegar árnar er að vaxa
9
oft má krækja í væna laxa.
10
Við getum sofið lakalaust og ljósar nætur.
11
Glasalaust við getum þambað
12
gamla Carlsberg - áfram rambað.
13
Við áramót ég óskir bestu ykkur sendi.
14
Þakka kynni á þessu ári,
15
þar með lík ég mínu pári.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.