Jólin 1971 desember 1971

#89
1 Jólakveðja frá Sig. Jónssyni:
2 Þegar leitar lax í á
3 og ljósar elvur skína,
4 verður bjart um von og þrá
5 og varmi um sáli þína.
 
6 Útúrsnúningur(M.Þ.):
7 Þegar svífur sál úr ná
8 og svartir djöflar gína,
9 verður dimmt um von og þrá
10 og vítislogar skína.
 
11 Fyrirhuguð bragarbót(M.Þ.):
12 Er lýsast dagar, lifnar þor
13 leiðir ísar hlána,
14 við geðugt krumma-krunk í vor
15 kemurðu með í ána.
 
16 Bragarbótarspillir(Sig.J.)
17 Er ég létti leiðindum
18 og lyfti skapi þungu,
19 Magnúsi varð svo mikið um
20 hann mælti á kölskatungu.
 
21 Ég ætlaði að gera bragarbót
22 en burt er það úr skapi,
23 kæri mig nú hætishót
24 þótt helvíti opið gapi.
25 M.Þ.

Athugasemdir

Engar almennar athugasemdir enn.

Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.