#1053

#1053

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (02/08/2026)

1 Ég ferðasögu færa vil
2 fjórmenninga í letur
3 er flæktust fjarra stranta til
4 að forðast langa vetur.
 
5 Héldu þau til Hafnar fyrst
6 himnaferðin ei sem verst
7 Tóta varð samt talsfert þyrst
8 og tautar "Uppsala er bezt"
 
9 Á Kastrup loks við lentum nett
10 og lífið sýndist eintómt grín
11 Keypti Lárus sófasett
12 og sagði "javel - den fin"
 
13 Í París menn lauksúpu löptu
14 lauksúpan hún var fín.
15 Um kvöldið þeir soltnir sátu
16 svelgjandi kampavín.
 
17 Þó hafði Lárus laumast
18 leynikrá eina á
19 fengið þar pylsu með fleiru
20 fjörinu bjargaði þá
 
21 En Ingibjörg veinaði og vældi
22 vildi ólm refja sinn mat.
23 Hún gat ei á heilli sér tekið
24 og hugsað um annað ei gat.