#1057
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (02/08/2026)
1
Blóðið þrýstir býsna hart á byrðing æða
2
þetta er djöfuls deyð og mæða!
3
Drottinn, látt mig ei hræða.
4
Ellin getur okkur orðið eilíf sæla
5
forðast skal að vola og væla
6
varast þrýstinginn að mæla.
7
Ef vel er drukkinn vínandi má velsæld finna
8
bragnar með því blóðið þynna
9
betra að drekka meir en minna
10
Því skal taka lífi létt og láta flakka
11
dreyfa dimmum skýjaklakka
12
djöflast um, líkt ólmum krakka.