Bókamarkaður

#1058

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (02/08/2026)

1 Bág er saga um bókamarkað
2 býsna oft úr húsum sparkað,
3 við útgefendur þráfallt þjarkað
4 Þeirra prísum framhjá sneytt,
5 enda oft komist í fjandi feitt.
 
6 Erfitt er með orðum lýsa
7 hve óskammfeilnir bækur prísa,
8 svo hárin muni á höfði rísa
9 og hrollur fer um hverja taug
10 Margur halur minna laug.
 
11 Æpt er hátt um þróun, þekking,
12 þjóðin veit að hér er blekking,
13 notuð alskyns taugatrekking
14 tæpt er vaðið - sull og bull.
15 Þeim er nóg ef græðist gull.
 
16 Mestan guð þeir mammon telja
17 menninguna honum velja
18 hún er þæg, og hana selja
19 hverjum, sem vill kaupa.
20 Um svik og pretti síðar kátir raupa.
 
21 Sjálfan fjandann hryllir hípa
22 svo hyggjukalda bókabísa
23 en burt nú sjálfu viti vísar
24 vegalausri aurasál.
25 Vítis enn þótt brenni bál.
 
26 Er sá langi illa ræmdur
27 í ystu myrkur burtu flæmdur,
28 sem frakkaþjófur fékkst ei dæmdur
29 þótt fjandi lægi nærri.
30 Ef ég hefði verið obbolítið stærri.

Athugasemdir (1)