17. mars 1976

#1061

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

Formáli

Kæru hjón, Fengum frá ykkur 3 kort í fyrradag og sé eg á þeim að andagiftin er Í fullu fjöri, það var semsé sami textinn á öllum kortunum! Samt fylgja hér með innilegar þakkir. Eg var búinn að pakka til ykkar Mogganum, en þegar ég kom með hann á skrifstofuna, sagði Guðrún mér að hún hefði sent ykkur öll blöðin daginn áður, svo eg hætti við að senda pakkann. Héðan er ekkert sérstakt að frétta, engin sala en ýmis- legt að stússa fyrir því. Eg fór bæði á Verzlunarráðsfundinn og å Kaupmannafélagsfundinn. Þú slappst við formennsku og varaformennsku stöðuna, Þorvaldur í Síld og Fisk kosinn varaformaður en Gunnar formaður. Þar hélt Óli Jóh. loðmulluræðu og svörin enn loðnari. Á fundi Verzl.ráðsins kom fram tillaga um að miða tollgj. við FOB-verð og stóð þá upp Óttar Möller og sagði að það væri ekki sæmandi fyrir Verzl.ráðið að senda svona tillögu frá sér, og bar fram tilllögu um að vísa þessu til stjórnar ráðsins, og var sú tillaga samþykkt. Þá varð til þessi vfsa:

1 Hversvegna er Möller á móti því
2 að miða toll við fobbið?
3 Felst þar einhver ótti í
4 að hann missi djobbið?

Eftirmáli

Lét eg Óttar heyra vfsuna Í kokktailpartÍI um kvöldið. Var hann alltaf að afsaka sig og sagðist svo sem ekkert vera á móti þessu, en sér fyndist bara að bað ætti að koma frá stjórn ráðsins en ekki aðalfundi. Svo er nú það! Candy sveik alla afgreiðslu á pottunum, svo Halldór varð alveg spól-vitlaus og skrifaði Bernardelli langt bréf og skoraði á hann að standa sig og sjá um afgreiðslu nú um hæl. Hér er veðrið alltaf kolvitlaust, snjór og rigning og rok á víxl, og enn er boðað verkföll á skuttogurunum á austur og vestur-landi, svo betta er ekki búið enn. Læt betta duga og á eflaust að skila bestu kveðjum frá öllum.