Jónas og bókasafnið í Hafnarfirði 16. mars 1976
1
Stikar um í stolnum frakka
2
stuttum, kannske af litlum krakka.
3
Á hestbaki sér í heldur makka,
4
hanga langar bífurnar.
5
Í bókasafn í bænum Hafnar,
6
bókum ötull þangað safnar,
7
brosir blítt til píunnar.
8
Í fjörðinn oft sér þarf að flýta
9
að finna svannan mjallahvíta.
10
Að hún skuli á hann líta
11
undrar margan horskan svein.
12
Þvílíkt undur, er það smekkur,
13
eins og maðurinn líka drekkur,
14
og ekkert nema skinn og bein.
Athugasemdir
Engar almennar athugasemdir enn.
Skráðu þig inn með Google sem rýnir til að skrifa athugasemdir.