#1093

#1093

Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)

1 Ýmsa þjáir ótti og kvíði
2 um annað líf að loknu stríði.
3 Iðrun samt þótt optast bíði
4 og aldrei verði gerð.
5 Hvar endar hinsta ferð?
 
6 Himnasælu seggir sakna
7 syfjulegir við sér rakna,
8 loksins vitstola svo vakna
9 í vítis- heitri glóð.
10 Farin ferð ei góð.
 
11 Því skal ráða synda-selum
12 er sífellt brugga ráð Í felum,
13 - þessum djöfuls drykkjudelum -
14 drýgjið ei meiri synd.
15 Frjáls er frelsislind.