#1095
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Andinn kom nú yfir mig og orðin streyma,
2
út og suður - aldrei heima,
3
er mig kannske bara að dreyma?
4
Ennþá fæðast inn í heimin ungabörnin.
5
Annars væri illa farið
6
ekki tekið rétt af skarið.
7
Afi og amma Í öngum sín' og angist bíða,
8
þykir stund hver lengi að líða
9
langt þó sé ei milli hríða.
10
Svo var Gústi, garpurinn, sem gengi á nálum,
11
fölur mjög, vart fótum loftar
12
fúslega lofar "Aldrei oftar.“
13
Daggý, betta mjóa Man, Í mæðu stríðir,
14
orðin þreytt hvað illa gengur,
15
ekki vill hún bíða lengur.
16
Herran veit hvað hafast má ef hugur sterkur
17
hjálpar til - nú harðnar verkur,
18
hnokkinn kom - var tíu merkur.
19
Menn það vita að mjór er jafnan mikils vísir.
20
Margur knár þótt mælist smár,
21
maðurinn þótt ei sé hár.
22
Læt eg eftir ljóðið þeim, sem læra kunna.
23
Lifið heil við lífsins brunna,
24
langan aldur, Jón og Gunna.
Athugasemdir (1)