#1211
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Vertu með glöðu geði
2
þótt gangi þér eitthvað mót.
3
Ef skefur og skyggir á alinn
4
skeyttu því ekki hót.
5
Gakk þú með létta lundu
6
lífinu brostu mót.
7
Sýndu sérhverjum manni
8
samút og vinahót.
9
Ef gera mátt einhverjum greiða
10
gerðu hann tafarlaust.
11
Með vinsemd og verkum góðum,
12
þú vinnur þér allra traust.