#1212
Yfirfarin af: Birgir Kristmannsson (01/08/2026)
1
Fyrir fimmtíu árum
2
fluttist Jón Kaldal heim.
3
Listfengur ljósmyndasmiður
4
léttur á fótum tveim.
5
Eignaðist stofu og áhöld
6
afburðamyndir tók,
7
vandvirkur var og iðinn
8
vinsældir stöðugt jók.
9
Frægur strax varð að vonum,
10
víðfrægur fyrir hlaup.
11
Dafnaði stofan drjúgum
12
dágóð voru þau kaup.
13
Nú er hann aldinn að árum,
14
afköst og elja dvín.
15
En dóttirin duglega unga
16
í "djobbinu" nýtur sín.
17
Er föllum við gamlir fauskar,
18
finnst mér það huggun góð
19
ef kynslóðin unga orkar
20
okkar að feta slóð.
21
Halda því merki í heiðri
22
er höfum við gamlir reist.
23
Ég efa ei þeirra eldmóð
24
ef þeim er bara treyst.